Er styttri vinnutími einn af ávinningum markþjálfunar hópa og teyma?
Þegar hópur fólks vinnur saman með skýran tilgang, markmið og leiðir er það teymi. Þessi munur á hópi og teymi getur skilað að minnsta kosti 20-50% meiri árangri í skilvirkni, minni átökum og aukinni sameiginlegri ábyrgð. Í hverju liggur þessi munur á hóp og teymi og hvernig brúum við bilið og gerum teymið og hegðun þess sjálfbæra?
Nú þegar aukin krafa er í samfélaginu um styttingu vinnutíma verða fyrirtæki að bregðast við með lausnum sem auka skilvirkni og bæta framleiðni. Hvernig getur markþjálfun starfsfólks og teyma í fyrirtækjum stutt við stjórnendur við styttingu vinnutíma?
ICF Iceland - félag markþjálfa á Íslandi, heldur sína árlegu ráðstefnu, Markþjálfunardaginn 30. janúar 2020 með yfirskriftinni:
Hver er ávinningur fyrirtækja af því að markþjálfa hópa og teymi?
Öflugt teymi innlendra og erlendra markþjálfa munu í erindum sínum fjalla um hóp- og teymismarkþjálfun útfrá ólíkum sjónarhornum. Þú getur kynnt þér bakgrunn fyrirlesara og erindi þeirra með því að smella á hlekkinn dagskrá hér fyrir neðan.
Peter Hård og Tracy Sinclair stjórnendamarkþjálfar verða með erindi á Markþjálfunardeginum og vinnustofur dagana 29. og 31. janúar.
Ráðstefnustjóri er Matti Ósvald, markþjálfi, PCC.
Sjáumst á Markþjálfunardaginn,
ICF Iceland - Félag markþjálfa á Íslandi.
Miðasala er hafin á Markþjálfunardaginn 2020 og vinnustofur.
Félagsmenn ICF fá að venju sérkjör, eða 50% afslátt af miðaverði.
Sala er hafin á sýningarbásum - Tryggðu þér bás, aðeins 20 í boði.
Heilsdags vinnustofur með alþjóðlegum fyrirlesurum þeim Peter Hård og Tracy Sinclair.
Sætafjöldi er takmarkaður við 20 manns, tryggðu þér pláss.
fyrir félagsmenn
Er þetta hópmarkþjálfun hjá mér?
Hvernig getur teymisþjálfun undirbúið leiðtoga og þeirra starfsmenn fyrir óþekkta framtíð og sett fókusinn á þá hæfnisþætti sem eru hve eftirsóknarverðastir?
How team coaching them can have a real sustainable effect on performance
Various aspects of team and group coaching
Fyrirlesarar og vinnustofur
Yfir 200 þátttakendur árið 2019
Dagar af fróðleik
Básar fyrir sýnendur
Meðylgjandi er mynd af fyrirkomulagi um bása og uppröðun borða.
Þegar bás eða fyrirtækjaborð er pantað fer greiðsla fram í gegnum örugga geiðsluleiðir Korta og fyrirtækjum er úthlutað 4 fermetra bás eða borðanúmeri.
Hafir þú séróskir er hægt að senda beiðni á icf@icficeland.is, að öðrum kosti verður þér sendur póstur með númerinu þínu eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd.