LOADING

Lilja Gunnarsdóttir

Formaður ICF Iceland - ACC markþjálfi

Lilja Gunnarsdóttir er núverandi formaður og fyrrverandi gjaldkeri ICF Iceland, Félags markþjálfa.

Lilja er ACC vottaður markþjálfi, viðskiptafræðingur MSc í stjórnun og stefnumótun og með diplóma í opinberri stjórnsýslu. Til að viðhalda og bæta við þekkingu sína hefur Lilja sótt fjölmörg námskeið og ráðstefnur sem aðallega tengjast markþjálfun, Lean, gæðamálum og hverju öðru sem stuðlar að því að bæta lífið og tilveruna hvort heldur er í starfi eða leik.

Mottó: Lengi getur gott batnað.

Lilja starfar sem sérfræðingur og verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg ásamt því að vera sjálfstætt starfandi markþjálfi. Hún hefur einnig sinnt kennslu á tölvu- og bókhaldsnámskeiðum en hennar helstu verkefni í gegnum tíðina hafa tengst mannauðs- og kjaramálum, fjármálum, ferlum, áhættumati, gæðamálum og þjónustu. 

Lilja Gunnarsdóttir

Erindi

Day 2
  —  
1:00 pm

13:00 Ávarp formanns

Lilja Gunnarsdóttir, formaður ICF Iceland setur ráðstefnuna.

Verð frá 12.250 kr.

fyrir félagsmenn

Það borgar sig að vera félagsmaður ICF Iceland

Fjöldi viðburða ár hvert, fræðsla og tengslanet

Skrá mig í félagið